Markmið er samvinnuverkefni Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar og Péturs Arnar

Friðrikssonar. Markmið er samsett úr margþættum verkefnum sem unnin eru

til sýningar, skrásett til birtingar á sjónrænan hátt og með öðrum heimildum.

Markmið er það sem það er hverju sinni; spunaverkefni. Hver sýning er

millistig síðustu sýningar og þeirrar næstu.

 

Þessi sýning í galleri@hlemmur.is er sjötta sýningin undir yfirskriftinni

Markmið en það hefur sýnt áður á vegum Listamannsins á horninu í

september 2001, í Gallerí Sævars Karls í júlí 2001, Galeria Wyspa í Gdansk,

Póllandi í mars 2001, Audio visual art gallerí Deiglunnar á Akureyri í júlí

2000 og fyrst í galleri@hlemmur.is í febrúar 2000.

ðal þeirra verkefna sem Markmið hefur framkvæmt má nefna; flugdrekaflug,

framleitt og útvegað ferða og björgunarbúnað, hannað og smíðað báta og

fenjadreka, kappakstur og eftirför á Volvo, jeppa-ðalög, skotkeppni með

fjarstýrðu skotmarki og skreyttum markmyndum, athuganir með fyrirbærið

orfplanki, kappsiglingar með fjarstýrðum bátum, hönnun og smíði eggvopna

og skotvopna og stóls útbúnum með miðunarbúnaði fyrir eftir-litsmyndavél,

innbrot og vopnasöfnun, tekið landslagsljósmyndir með hjálp eldflauga,

flugdreka og sérútbúnum gjörðum sem renna niður fjallshlíðar.