PORTRET AF ÁNAMÖÐKUM
"Í harðri samkeppni um athygli til dæmis á fjölmiðlamarkaði hafa
glansmyndir af yngismeyjum verið næsta traust söluvara. Til þessa hafa fáar
myndir af rennilegum ánamöðkum prýtt forsíður dagblaða og tímarita en
hver veit nema á næstunni sé breytinga að vænta hvað það varðar. Ungur
listamaður fetar um þessar mundir ótroðnar slóðir í listsköpun sinni
þar sem viðfangsefnið er dulúðugar ljósmyndir af ánamöðkum."
(úr texta í sýningarskrá, eftir Hólmfríði Sigurðardóttur
líffræðing og ánamaðkaaðdáanda)
Laugardaginn 9.mars kl 16:00 opnar Jóhannes Atli Hinriksson ljósmyndasýningu í galleri@hlemmur.is. Jóhannes Atli útskrifaðist úr skúlptúrdeild Listaháskóla Íslands 1997. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14:00 - 18:00, og stendur til 30. Mars n.k.