Fréttatilkynning

Laugardaginn 2.oktober kl.16:00 opnar  myndlistarmaðurinn Erling Þ.V.Klingenberg sýningu í galleri@hlemmur.is, Þverholti  5 Reykjavík.

Þar mun listamaðurinn gera tilraun til að  skilgreina bilið milli minnimáttar og meiriháttar. Hann  veltir fyrir sér hver drifkraftur listamannsins sé í raun,   hvað knýr tilraunir hans áfram til fullkomnunar. Er  það gamla klisjan, kynhvötin og dauðinn -  óendanleikinn? Hver er ímynd listamannsins, staða hans   í dag og hvað þarf hann að kljást við?   Hvaða spor skilur hann eftir í þjóðfélaginu  og hvaða djöful hefur hann að draga? Eru óhreinindi   skítur á vitlausum stað?

Þetta eru huglægar vangaveltur sem listamaðurinn  hefur sett í hlutlæg form, m.a. sem talandi tilraunarottu.   Spurningin er bara hvað hún biður
um eða hvað er  hún að bjóða, og hvort gerir  hún.


Sýningin er opin í sýningarsal galleri@hlemmur.is Þverholti 5  , frá 2.okt. - 24.okt. alla daga nema mánudaga frá kl.14:00  - 18:00. Einnig verður
hægt að skoða myndir frá  sýningunni á vefsíðunni http://galleri.hlemmur.is